Með styrktarstoðum ökutækis er yfirleitt átt við grindina fyrir yfirbygginguna. Þær vega um 30 prósent af heildarþyngd bílsins og gegna lykilhlutverki í styrkleika bílsins í árekstri og í útlitshönnun. Með notkun hástyrktarstáls í styrktarstoðir ökutækis með heitvölsunaðferð dregur úr þyngd ökutækisins en stífleiki hans eykst. Niðurstaðan er meiri sparneytni og meira árekstraröryggi.
Í bíl frá Kia er öryggið tryggt með hámarksfjölda öryggispúða, þ.m.t. öryggispúðar fyrir ökumann og farþega í framsæti, hnépúði fyrir ökumann, loftpúðatjöld og hliðarpúða að framan og aftan.
Sætisbeltastrekkjarar er búnaður sem heldur farþegum í skorðum í sætum sínum rétt áður og við árekstur og stýrir því hvernig þeir lenda á uppblásum öryggispúðum.
Neðra fótlag / neðri stífa
Þegar bíl er ekið á gangandi vegfaranda getur neðra fótlag á stuðara eða neðri stífa lágmarkað beygju í hné vegfaranda og stýrt því að hann lendi ofan á bílnum í stað þess að verða undir honum.
Áherslan á öryggi hefur snúist um aukna vernd fyrir farþega og gangandi vegfarendur. Nú hefur ný áskorun orðið til varðandi öryggi ökutækja: Hvernig með árangursríkustum hætti verði komið í veg fyrir árekstur.
AEB kerfið aðstoðar ökumann að forðast eða draga úr alvarleika slyss með því að aðvara hann eða hemla með sjálfvirkum hætti. Ratsjá á stuðara og myndavél á framrúðu fylgjast með yfirvofandi hættu framundan, til að mynda vegfarendum eða öðrum bílum.1
TPMS fylgist með loftþrýstingi í innanverðum hjólbörðum bílsins og aðvarar ökumann ef of lágur loftþrýtingur er í einhverjum þeirra og bendir á staðsetningu.
Í gegnum þetta kerfi fylgist bíllinn með vegaðstæðum og stuðlar að auknu öryggi með því að grípa með sjálfvirkum hætti inn í stýringu og hemlun á mishæðóttum vegum.
Þegar bílnum er skyndilega hemlað á ferð sér búnaðurinn til þess að hemlaljósin blikka hratt öðrum ökumönnum fyrir aftan til viðvörunar.
Myndavél á framrúðu bílsins fylgist með akreininni framundan. Ef ökumaður víkur út af sinni akrein vegna þreytu eða athugunarleysis varar búnaðurinn hann við.
Árekstrarvarinn metur líkurnar á árekstri aftan á bíl sem á undan er ekið. Búnaðurinn aðvarar ökumann með hljóðmerki og táknmynd ef skyndilega er hægt á bílnum á undan og þannig dregur úr líkum á árekstri. Búnaðurinn dregur athygli ökumanns að hættunni áður en virkjar AEB kerfið til að stöðva bílinn með öruggum hætti.
Loftþrýstingsvari fyrir hjólbarða er virkur öryggisbúnaður sem fylgist með loftþrýstingi í innanverðum hjólbörðum bílsins og aðvarar ökumann ef einhver þeirra er með of lágan loftþrýsting.