Kia K4

Farðu þína leið.
Frá
0 ISK*

Ljós- og hreyfimyndir eru eingöngu notaðar til skýringar. Endanleg vara getur verið frábrugðin myndunum sem notaðar eru. Tegundir og tæknilýsingar sem sýndar eru á þessari síðu geta verið frábrugðnar þeim tegundum sem eru í boði á þínum markaði. Vinsamlegast hafðu samband við þitt Kia sölu- og þjónustuumboð til að fá nýjustu upplýsingarnar.

  • Kraftmikil hönnun
  • Tæknivæddir eiginleikar
  • Tvær útfærslur
Hönnun

Kia K4 þorir að vera öðruvísi  - og gefur hverri ökuferð ánægjulega uppfærslu. Með djörfum, nútímalegum hlutföllum, rúmgóðu innanrými og tækni sem hönnuð er til að sjá fyrir þörfum þínum. Hann veitir alhliða þægindi og fágaðri upplifun fyrir þá sem búast við meiru af hverri ökuferð.

Djarft og ákveðið yfirbragð að framan

Breiður og öruggur svipur K4 vekur athygli úr öllum áttum. láréttar línur mynda áhugaverða andstæðu við lóðrétt form, á meðan Star Map ljósamynstrið og LED aðalljósin gefa bílnum nútímalegt og sportlegt yfirbragð.

Áberandi skuggamynd

Lág þaklína og aukin lengd gefa K4 straumlínulagað form sem er bæði sportlegt og fágað. Faldir afturhurðahúnar og einstök hönnun á C-stólpanum skapa hreinar og áberandi línur. Útlit sem er gert til að hreyfast – og vekja athygli.

Einkennandi LED-afturljós

Aftan á bílnum setja öfug L-laga LED afturljós skýrt og eftirtektarvert ljósamynstur – bæði að degi til og í myrkri. Sportlegur stuðari með dreifilaga hönnun og svartir neðri fletir auka á kraftmikið og nútímalegt útlit. Formaður, áberandi þakspoiler kórónar heildarmyndina. K4 skilur eftir sig eftirminnileg spor þegar hann hverfur sjónum.

Úrval af felgum sem henta þér

Djörf og áberandi hjólahönnun fær K4 sitt einstaka yfirbragð. Í boði eru 16" stálfelgur og 16", 17" og 18" álfelgur, hver með sínum sérkennum. Stílhreinar línur og sportlegt yfirbragð tryggja að þú vekur athygli – jafnvel þegar bíllinn er kyrr.

Þægilega rúmgóður

K4 umlykur þig með ríflegu fótaplássi og úthugsaðri hönnun, hvort sem þú situr í framsæti eða í annarri sætaröðinni. Fágað farþegarýmið er rúmgott, með snjöllum geymsluhólfum og plássi fyrir allt það nauðsynlegasta. Þar á meðal er allt að 438 lítra farangursrými svo þú getur flutt allt sem þú þarft með auðveldum hætti. Andrými og pláss til að njóta í hverri ökuferð.

Nútímalegt yfirbragð

Hreinar línur, breitt lárétt mælaborð og úthugsaðir eiginleikar skapa rólegt og rúmgott yfirbragð í öllu farþegarýminu. Náttúrulega birta sem flæðir inn um þakgluggann eykur yfirbragðið.

Sportleg smáatriði í farþegarýminu

Fáguð og kraftmikil smáatriði í farþegarýminu vekur sportleg hughrif – eins og þriggja arma stýrið1 úr lífrænu gervileðri með skiptiflipum og nýhönnuðu gírstönginni. Allt hannað til að skera sig úr - í anda K4.

Upphituð og loftkæld sæti

Njóttu sérsniðinna þæginda, í öllu veðri og vindum, allan ársins hring - þökk sé upphituðum fram- og aftursætum og kælingu fyrir fremstu sætaröðina. Hvort sem það er vetur eða sumar aðlagast K4 þínum persónulegu þörfum þegar þú sest í mjúkt sætið.

Þægindi og tengimöguleikar

Upplifðu snjallari akstur með Kia K4. Notendavænt ökumannsrými, háþróað margmiðlunarkerfi og snjallir tengimöguleikar gera allt einfaldara og halda þér tengdum á ferðinni. Útkoman er þægilegri, nútímalegri og snjallari upplifun í hverri ferð.³ ⁴

Aðlögunarhæf umhverfislýsing

Upplifðu akstursumhverfi sem er bæði fágað og aðgengilegt. Háþróuð stemningslýsingartækni aðlagast að stemningu og hreyfingum í takt við akstursstillingar og ADAS-kerfi. Hún er grípandi, snjöll og hönnuð til að gera hvert augnablik betra.

Háþróað upplýsinga- og afþreyingarkerfi fyrir allar þínar þarfir

Þrefaldi víðsýnisskjárinn er hannaður til að hjálpa þér að aka á snjallari hátt, með meiri skýrleika og stjórn. Hann samanstendur af 12,3" stafrænu mælaborði, 5,3" miðstöðvarskjá og 12,3" snertiskjá fyrir upplýsinga- og afþreyingarkerfi og leiðsögn (ccNC). Hægt er að skipuleggja ferðir, skoða myndir úr myndavélum og opna upplýsinga- og afþreyingarkerfið áreynslulaust, allt á meðan þú heldur athygli við veginn fram undan.

12,3 tommu glæruskjár (HUD)

12,3" Head-Up skjárinn gerir aksturinn enn áreynslulausari með því að sýna lykilupplýsingar, eins og hraða og umferðaruppfærslur, beint í sjónlínu þegar horft er í gegnum framrúðuna.

Snjallar uppfærslur. Fyrirhafnarlausar endurbætur

K4 þróast með þér. Þökk sé þráðlausum hugbúnaðaruppfærslum (OTA)² helst bíllinn uppfærður, hvort sem það eru nýjungar í afþreyingarkerfum eða fínstillingar á kerfum bílsins. Allt án þess að stíga fæti í verkstæði.

Enginn lykill, engin fyrirhöfn – bara stafræni lykillinn 2.0 í símanum ³

Segðu bless við hefðbundna lykla. Með Kia Digital Key 2.0 3 verður samhæfður snjallsími eða snjallúr að bíllyklinum þínum, jafnvel þótt hann sé í töskunni eða vasanum. Þú getur líka deilt aðgangi samstundis með vinum og fjölskyldu í gegnum Kia-appið.

Vertu í sambandi í hverri ferð ⁴

Með þráðlausri tengingu við Apple CarPlay® og Android Auto™ sem staðalbúnað, gerir K4 þér auðvelt að taka stafræna heiminn með í ferðina. Notaðu raddskipanir eða snertiskjáinn til að nálgast kort, tónlist og fleira – allt án þess að setja í samband. Að auki tryggja fjögur USB-C tengi víðsvegar um innanrýmið að allir geti haldið tækjunum sínum hlöðnum og klárum fyrir næsta áfangastað.⁴

Aflrásir og útfærslur

Kia K4 er í boði með 1.0L bensínvél

Kia K4

  • Bensínvél
  • Sjálfskriptin
  • Bakkmyndavél
  • Digital Key 2.0
  • Kia app
Öryggi

Kia K4 færir nú háþróaða ADAS-eiginleika í C-flokkinn og hjálpar þér að takast á við þær aðstæður sem upp kunna að koma á veginum. Nýjustu myndavélar og skynjarar vinna saman að því að koma í veg fyrir hættur og aðstoða við krefjandi aðstæður. Fyrir þig og þá sem eru í kringum þig.

Blindsvæðisskjár (BVM)

Njóttu góðs af auka augum þar sem þú þarft á þeim að halda. Blindsvæðisskjárinn sýnir lifandi mynd af blindsvæðum í mælaborðinu þegar þú gefur stefnuljós til að beygja eða skipta um akrein.

Snjallhraðastillir 2 (SCC 2)

Með SCC 2-tækninni aðlagar K4 hraðann að umferð og aðstæðum á vegum, þar á meðal með því að draga úr hraða í beygjum til að tryggja öryggi allra. Hann fer svo aftur á forstilltan hraða þegar aðstæður leyfa. Ef kerfið nemur að þú bregðist ekki við í ökumannssætinu stöðvar það bílinn á öruggan hátt á sinni akrein, lætur aðra vita og aflæsir öllum hurðum sjálfkrafa.

Hraðbrautaraðstoð 2.0 (HDA 2.0)

HDA 2.0 aðlagar sjálfkrafa hraða bílsins að hámarkshraða og heldur öruggu bili við ökutæki á undan. Kerfið getur jafnvel skipt um akrein sjálfkrafa þegar stefnuljós er gefið.

Víðsýnisskjár (SVM)

Með víðsýnisskjánum færðu fulla 360° yfirsýn yfir nánasta umhverfi þegar þú situr í K4-bílnum þínum. Það hjálpar þér til dæmis að komast í gegnum þröng bílastæði með auðveldum hætti.

Árekstrarvari fyrir blindsvæði (BCA)

BCA eykur öryggi við akreinaskipti með því að vara þig við ökutækjum á blindsvæðinu. Þegar þú ekur fram úr samsíða bílastæði getur kerfið beitt neyðarhemlun sjálfkrafa ef það nemur ökutæki sem nálgast aftan frá.

Árekstrarvari að framan 2.0 (FCA 2.0)

FCA 2.0 veitir þér aukna hugarró með því að koma í veg fyrir hugsanlega árekstra við gangandi vegfarendur, hjólreiðafólk og önnur ökutæki. Ef þú hemlar ekki nógu harkalega í tæka tíð getur bíllinn hemlað sjálfkrafa. Kerfið aðstoðar þig einnig við að forðast slys þegar þú beygir á gatnamótum eða ekur yfir þau.

  •  

    Verðlisti



    Smelltu hér fyrir neðan til að sjá verðlista

     

Aukahlutir

Frá daglegum akstri til lengri ferða og útivistar – Kia aukahlutir hjálpa þér að laga K4 að þínum þörfum og gera hverja ferð enn þægilegri.

Mottur úr velour

Haltu innanrými K4 hreinu og snyrtilegu lengur. Hágæða velour gólfmotturnar verja innanrýmið gegn óhreinindum frá daglegri notkun og setja um leið fágaðan svip á það. Motturnar eru sérsniðnar að fótarýminu og falla því fullkomlega að. Fremri motturnar eru merktar GT-Line eða Kia merkinu.

Tvíhliða skottmotta með hlíf fyrir afturstuðara

Þessi sérsniðna hágæða velour motta hjálpar til við að halda farangursrýminu hreinu, snyrtilegu og vel vörðu til lengri tíma. Á mottunni eru smellur fyrir útfellanlega hlíf sem ver afturstuðarann gegn

Losanlegt dráttarbeisli

Þegar flytja þarf þyngri farm er þetta hágæða dráttarbeisli úr tæringarþolnu stáli traust og hentug lausn. Hægt er að taka kúluna af á einfaldan og öruggan hátt þegar hún er ekki í notkun, þannig að hún sé lítt áberandi.

Farangursbox 390

Þegar þig vantar aukið geymslurými er þetta rúmgóða og straumlínulagaða farangursbox þægileg lausn. Það er einfalt í uppsetningu og hægt er að opna það frá báðum hliðum, sem auðveldar hleðslu og losun.

Vindhlífar fyrir framrúður

Njóttu fersks lofts eða hlýju sólarinnar á ferðinni. Loftmótaðar vindhlífar á framhurðum gera þér kleift að hafa rúðuna lítillega opna án þess að blotna eða finna fyrir óþægilegum vindstreng.