Takk fyrir okkur
10-01-2022
Kia var mest seldi fólksbíllinn á Íslandi árið 2021.
Alls voru nýskráðir 1.826 Kia fólksbílar á árinu og var markaðshlutdeildin 14,3%. Þetta eru tímamót á bílamarkaði því að í fyrsta sinn er Kia mest seldi fólksbíllinn á Íslandi. Starfsfólk Öskju þakkar viðskiptavinum sínum traustið og frábærar móttökur á liðnu ári.
Kia horfir björtum augum fram á veginn enda býður fyrirtækið breitt úrval umhverfisvænna bíla og öflugt þróunarstarf Kia gerir að verkum að stöðugt bætist í hópinn. Allt frá verðlaunarafbílnum Kia EV6 yfir í tegundir sem hafa fyrir löngu skapað sér nafn fyrir áreiðanleika og tæknilega fágun eins og Sorento, Sportage og Niro.
Það er óhætt að láta sér hlakka til framtíðarinnar með Kia