Aflmikill akstur
Hannaður fyrir afburða akstur.
Kia Stonic hefur farið í gegnum strangar prófanir á áreiðanleika og endingu og við erum stolt að bjóða hann, eins og allar gerðir Kia, með ábyrgð sem setur fordæmi fyrir allan bílaiðnaðinn. Allar gerðir Kia koma með 7 ára/150.000 km ábyrgð.
Uppfærslur á kortum í leiðsögukerfum Kia bíla eru án endurgjalds einu sinni á ári í sex ár, en það er liður í fyrirheitum okkar um gæði. Uppfærslur tryggja að leiðsögukerfið byggir ávallt á nýjustu upplýsingum.
Nýr Kia Stonic er samhæfður fyrir Android Auto™, sem er hannað fyrir Android farsíma með 5.0 stýrikerfi 5.0 (Lollipop) eða nýrra. Nýr Kia Picanto er samhæfður fyrir Apple CarPlay™ fyrir iPhone 5 eða nýrri gerðir. Bæði kerfin bjóða upp á raddstýringu sem gerir ökumanni kleift að hafa báðar hendur á stýri og augun á veginum öllum stundum. Android Auto™ og önnur merki eru vörumerki Google Inc., en Apple CarPlay™ er vörumerki Apple Inc.
Uppfærslur á kortum án endurgjalds einu sinni á ári í sex ár er liður í fyrirheitum okkar um gæði. Þetta einstaka tilboð tryggir að leiðsögukerfið byggir ávallt á nýjustu upplýsingum. Tilboðið nær eingöngu til nýrra Kia bíla sem keyptir eru eftir 28. febrúar 2013 með LG leiðsögukerfi frá verksmiðju. Þjónustuaðili gæti innheimt gjald fyrir upphleðslu á uppfærslunni. 7 ára uppfærsla á kortum miðast við sex kortauppfærslur því Kia bílar koma ávallt með nýjustu uppfærslu frá framleiðanda. Tilboðið hefur ekki áhrif á ábyrgð á leiðsögukerfinu. Kortagögn koma frá gagnafyrirtækinu Navteq og ber Kia ekki ábyrgð á gæðum þeirra.
Drive Wise tækni er akstursstoðkerfi sem leysir ökumann ekki undan þeirri ábyrgð sinni að stjórna ökutæki sínu með öruggum hætti öllum stundum. Ökumaður verður eftir sem áður að laga akstursmáta sinn að sinni persónulegu akstursgetu, virða umferðarreglur og lög og taka mið af vegskilyrðum og umferðaraðstæðum hverju sinni. Drive Wise tækni er ekki hönnuð fyrir sjálfvirkan akstur. Frekari upplýsingar er að finna í eigandahandbókinni.
Árekstrarvari að framan (FCA) er akstursstoðkerfi sem leysir ökumann ekki undan þeirri ábyrgð að haga akstri sínum með ábyrgum hætti öllum stundum. Ökumaður skal aðlaga aksturinn að eigin akstursgetu, að lagalegum skilyrðum og að vega- og umferðaraðstæðum. FCA er ekki ætlað til sjálfaksturs ökutækisins. Nánari upplýsingar er að finna í eigandahandbókinni.
Gildir í öllum Evrópusambandslöndum (einnig í Noregi, Sviss, Íslandi og Gíbraltar), háð staðbundnum skilmálum og skilyrðum.
Fyrir ökutæki sem eru seld frá maí 2022 býður Kia upp á tvær endurgjaldlausar uppfærslur á hugbúnaði og kortum í leiðsögukerfi ökutækisins með svokallaðri "over-the-air" aðferð ("OTA Updates").