Chat with us, powered by LiveChat
Go to content
  1. Home
  2. Um Kia ...
  3. Fréttir og viðburðir ...
  4. Fréttir

Fréttir

Kia PV5 Passenger á ferð

Kia PV5 Passenger er fjölskyldubíll ársins hjá BBC Top Gear

01-12-2025

Rúmgóður, hagkvæmur og framúrskarandi virði
Ein áhrifamesta bílaviðurkenning í heimi Kia PV5 Passenger hefur hlotið titilinn Fjölskyldubíll ársins (e. Family Car of the Year) á BBC TopGear.com Awards 2026, einni áhrifamestu bíla­viðurkenningu heims sem veitt er árlega. Verðlaunin fagna nýstárlegustu og áhrifamestu bílum ársins í fjölbreyttum flokkum. Kia PV5 Passenger verður frumsýndur á Íslandi í janúar 2026 en forsala er nú þegar hafin. strong>Brautryðjandi nýsköpun Þessi viðurkenning BBC TopGear.com undirstrikar vaxandi styrk Kia í rafmögnuðum samgöngum og byggir á sterkum árangri Kia hjá BBC Top Gear. PV5 Passenger fylgir þar í fótspor fyrri sigra Kia, Manufacturer of the Year árið 2022 og viðurkenninga fyrir rafbílana EV6 (2021), EV9 (2023) og EV3 (2024), sem allir hafa verið viðurkenndir fyrir að færa framtíðarsýn nær notagildi og daglegu lífi. Viðurkenningin kemur einnig í kjölfar á sigur Kia PV5 Cargo sem hlaut á dögunum viðurkenninguna Sendibíll ársins 2026 (e. 2026 International Van of the Year) og undirstrikar því hvernig PV5 höfðar bæði til atvinnu- og einkanotkunar. Nánar um sendibíl ársins hér. Rafvæddur og praktískur fyrir nútíma fjölskyldur Niðurstaða BBC Top Gear segir hvernig PBV-línan frá Kia endurskilgreinir hvað nútíma fjölskyldur geta búist við af rafbíl. Með framúrskarandi rými, hagkvæmni, sveigjanleika og virði sem setur ný viðmið í flokknum og meira virði en samkeppnisaðilar bjóða upp á. „PV5 Passenger markar nýjan kafla í aðgengilegum og praktískum rafvæddum samgöngum í Evrópu. Rúmgóð hönnun, fjölhæf yfirbygging og mjúk akstursupplifun sýna hvernig PBV-bílar geta raunverulega bætt daglegt fjölskyldulíf. Þessi viðurkenning frá Top Gear veitir okkur enn meiri trú stefnu okkar á meðan við stækkum PBV-línuna um alla Evrópu“ sagði Marc Hedrich, forseti og forstjóri Kia Europe. Af hverju PV5 vann: Rými, þægindi og virði „PV5 býður upp á óvenjulega blöndu af rausnarlegu rými, praktískum þægindum og áhrifamikilli orkunýtingu. Allt þetta á einstaklega góðu verði. Hönnunin er vel ígrunduð, fjölskyldumiðuð og framkvæmd með skýrleika og tilgangi.“ sagði Jack Scarlett, greinahöfundur hjá BBC Top Gear, úr PV5 Review 2025. Ritstjórn Top Gear lagði sérstaklega áherslu á eftirfarandi eiginleika PV5 Passenger: Óvenju rúmgott og fjölhæft innanrými sem skilar framúrskarandi notagildi. Mjúk og fáguð akstursupplifun sem er sjaldgæf í bílum af svipaðri stærð og lögun. Áhrifamikil orkunýting og úrvals aksturseiginleikar í raunverulegum aðstæðum. Áberandi gott hlutfall verðs við getu og frammistöðu, sem býður meiri virði en helstu samkeppnisaðilar. Saman mynda þessir kostir afar aðlaðandi valkost fyrir fjölskyldur sem leita að praktískum, rafvæddum samgöngum. PV5: Ný nálgun á fjölskyldusamgöngur Byggður á nýjum undirvagni PBV (Platform Beyond Vehicle) frá Kia, innleiðir PV5 brautryðjandi nýsköpun í sveigjanlegri hönnun og rafrænum samgöngum sem hægt er að laga að ólíkum lífsstíl viðskiptavina. PV5 Passenger útgáfan býður upp á sérstaklega rúmgott farangurs- og farþegarými auk þeirrar góðu akstursupplifunar sem einkennt hefur nýjustu rafbílana frá Kia. PV5 verður fylgt eftir með stærri bílum á borð við PV7 (2027) og PV9 (2029). BBC TopGear.com Awards Eitt áhrifamesta bílablað heims, stendur ár hvert fyrir BBC TopGear.com Awards þar sem mest framúrskarandi bifreiðar ársins eru metnar í flokkum á borð við Performance Car of the Year, Manufacturer of the Year, Super GT of the Year, Design of the Year og Car of the Year. Vinningshafar eru valdir af ritstjórn Top Gear út frá nýsköpun, akstursupplifun, verðgildi og frammistöðu í raunheimum.