Chat with us, powered by LiveChat
Go to content
  1. Home
  2. Um Kia ...
  3. Fréttir og viðburðir ...
  4. Fréttir

Fréttir

Kia Niro EV

Sala hafin á Kia Niro EV í Kóreu og forpöntun hafin á Íslandi

15-08-2018

Sala er hafin á nýjum Kia Niro EV í Kóreu. Hann státar af mengunarlausum, hreinum rafmótor, notagildi jepplings, snjöllum lausnum í innréttingum og laglegri útlitshönnun. Akstursdrægið er allt að 455 km sem setur hann í flokk þeirra rafbíla sem hafa hvað mesta drægni í heiminum.
Niro EV hefur einstaka stöðu á alþjóðamarkaði sem rafdrifinn jepplingur. Hann er viðbót við Hybrid og Plug-in Hybrid útfærslur bílsins sem hafa selst í meira en 200.000 eintökum frá því Niro kom á markað árið 2016 (þar af meira en 65.000 bílar í Evrópu).
Kia hefur fengið yfir 5.000 forpantanir á Niro EV í Kóreu frá því bíllinn var fyrst sýndur þar fyrr á þessu ári, auk þess sem forsala í Noregi hefur farið mjög vel af stað.
Nýi bíllinn verður frumsýndur í Evrópu á bílasýningunni í París í október og sala hefst síðan í árslok 2018 en nú er hægt að forpanta bílinn hjá Bílaumboðinu Öskju. Pöntunargjald er 117.777 kr. en gjaldið er um leið innborgun á bifreiðina. Hægt að panta bílinn hér. ATH: full endurgreiðsla á pöntunargjaldi ef viðskiptavinur hættir við kaup.
Niro EV kemur með afkastamikilli 64 kWh lithium-pólymer rafhlöðu sem býður upp á allt að 455 km mengunarlaust akstursdrægi í einni hleðslu. Það tekur 54 mínútur að ná 80% hleðslu í gegnum 100 kW hleðslustöð. Einnig verður boðið upp á Niro EV með 39,2 kWh lithium-pólymer rafhlöðu sem er með allt að 300 km drægi.

Við akstur er átakinu er beint til framhjólanna í gegnum 150 kW (204 hö) rafmótor. Togið er 395 Nm úr kyrrstöðu og er hann aðeins 7,8 sekúndur frá 0 í 100km/klst. Rafhlaðan er undir farangursrýminu sem myndar lágan þyngdarpunkt og tryggir hámarks stöðugleika og akstursánægju á bugðóttum vegum.
Í takt við framtíðarmiðaðan rafmótor Niro EV stendur kaupendum einnig til boða hátæknivædd akstursstoðkerfi Kia sem aðstoða ökumann við aksturinn við margvíslegt umhverfi og aðstæður og draga úr líkum á óhöppum.

Meðal öryggisbúnaðar sem er í boði má nefna árekstrarvara að framan með virku inngripi, skynræna hraðastýringu með skynrænu Stop&Go kerfi og akreinastýringu sem er einkar notendavæn. Kerfið fylgist með bílum sem á undan fara í umferðinni og greinir akreinamerkingar í því skyni að halda Niro EV á réttri akrein. Kerfið tekur mið af akstri bílanna fyrir framan og stýrir hröðun bílsins, hemlun og stýringu. Það styðst við skynjara á utanverðum bílnum til að viðhalda öruggri fjarlægð frá næstu bílum. Akreinastýringin er virk á 0 til 130 km hraða á klst.

Hjólhaf bílsins er 2.700 mm sem tryggir gott fótarými fyrir alla farþega. Um leið eykur jepplingahönnun bílsins tilfinningu fyrir rými. Breidd bílsins er 1.805 mm, lengd 4.375 mm og hæð 1.560 mm sem tryggir gott olnboga- og höfuðrými alls staðar í farþegarýminu. Farangursrými er einstaklega rúmgott eða 451 lítrar sem er meira en í gengur og gerist í flestum tengiltvinnbílum og rafbílum.