Chat with us, powered by LiveChat
Go to content
  1. Home
  2. Um Kia
  3. Fréttir og viðburðir
  4. Fréttir

Fréttir

Kia EV3 frumsýndur á Íslandi

Kia EV3 frumsýndur á Íslandi

09-01-2025

Frumsýndur um land allt



Það er okkur sönn ánægja að tilkynna að frumsýning Kia EV3 fer fram laugardaginn 18. janúar kl. 12-16 í sýningarsal Kia að Krókhálsi 13 og hjá umboðsaðilum Kia um land allt.

EV3 hefur verið beðið með mikilli eftirvæntingu og nú loksins getum við svipt hulunni af þessum brautryðjandi rafbíl.

Ekki missa af frumsýningu Kia EV3 á Íslandi.

Við tökum vel á móti þér.

Ánægjulegri rafmögnuð upplifun



EV3 er hlaðinn tækni sem finnst vanalega í stærri rafjeppum, en hann kemur með tækni Kia EV9 og setur þannig nýja gæðsastaðla í flokki borgarjepplinga (crossover eða CUV).

EV3 kemur með allt að 605 km drægni, 460L farangursrými, margverðlaunaðari hönnun og hleðslugetu frá 10-80% á 31 mínútu.

Streymisþjónustur, háþróuð akstursaðstoðarkerfi og þráðlausar uppfærslur bæta notendaupplifun, en EV3 er þar að auki fyrsti bíllinn sem kemur með Kia AI Assistant gervigreindartækni. Gervigreindin skilur flókin samhengi og tungumál og getur átt eðlileg samtöl við notendur.

>Nánar um Kia EV3



Drifkraftur nýrra tíma



Hægt er að velja um 3 útgáfur í vefsýningarsal Öskju; Air, Earth og Luxury, ásamt því að velja um nýja liti frá Kia.

Kia EV3 Air: 6.190.777 kr. -

Með rafbílastyrk 5.290.777 kr.



Kia EV3 Earth: 6.890.777 kr. -

Með rafbílastyrk 5.990.777 kr.



Kia EV3 Luxury: 7.490.777 kr. -

Með rafbílastyrk 6.590.777 kr.



>Skoða úrval Kia EV3



Frumsýning Kia EV3 fer fram á sama tíma hjá umboðsaðilum Kia um land allt:

  • - Sýningarsal Kia á Íslandi að Krókhálsi 13 – Reykjavík
  • - Askja Vesturlandi - Akranes
  • - Höldur bílasala – Akureyri
  • - K. Steinarsson – Keflavík
  • - BVA – Egilsstöðum
  • - Bílasala Selfoss – Selfoss

    Við tökum vel á móti þér!